Heimsmeistaramót 19 ára og yngri verður haldið í Bydgoszcz í Póllandi 19.-24. júlí nk. Þrír einstaklingar náðu lágmörkum og hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd:
- Tristan Freyr Jónsson, ÍR sem keppir í tugþraut og 110 m grindarhlaupi
- Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR í kringlukasti
- Þórdís Eva Steinsdóttir FH í 400 m hlaupi
Árið 1988 var móðir Þórdísar, Súsanna Helgadóttir langstökkvari og spretthlaupari og faðir Tristans, Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi meðal keppenda á HM unglinga. Eplið fellur greinilega ekki langt frá eykinni.
- Þjálfarar og fararstjórar í ferðinni verða Súsanna Helgadóttir og Þráinn Hafsteinsson.