Ásakanir bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Ólafs Inga Tómassonar, um meint ósannsögli fulltrúa minnihlutans og brot á siðareglum varðandi umræðu um skil á lóðum í Skarðshlíð hafa verið til umfjöllunar í seinustu tveimur blöðum Fjarðarfrétta.
Markmið siðareglna kjörinna fulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ er að vera rammi utan um störf þeirra. Þeim ber að fylgja lögum, reglum og samþykktum sem og sinni eigin sannfæringu, ásamt því að gæta almannahagsmuna og hagsmuna sveitarfélagsins.
Í þeim felst hins vegar ekki að kjörnir fulltrúar megi ekki tjá sig um mál og afgreiðslu þeirra ef sannfæring þeirra býður þeim svo.
Kjörnum fulltrúum ber að hafa í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu, t.d. gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku og viðhafa lögmæt og málefnaleg sjónarmið við sín störf.
Kjörnum fulltrúum ber einnig að virða valdmörk og fara ekki út fyrir umboð sitt. Þá eiga þeir einnig að sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa virðingu.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Hafnarfjarðarbæ. Siðareglum er hins vegar ekki ætlað að vera pólitísk kúgunartæki sem beita má til að þagga niður óþægilega umræðu.
Bæjarfulltrúinn, Ólafur Ingi Tómasson, hefur ekki lagt fram formlegt erindi vegna meintra brota fulltrúa minnihlutans og aðspurður á fundi bæjarstjórnar þann 14. mars sl. kvaðst hann ekki ætla að fylgja málinu eftir. Bæjarfulltrúinn hefur þannig valið að ásaka fulltrúa minnihlutans á bæjarstjórnarfundi um brot á siðareglum en treystir sér hins vegar ekki til að standa við þau orð sín og senda forsetanefnd erindi þess efnis. Tilgangur ásakananna virðist því einungis hafa verið að reyna að koma í veg fyrir óþægilega umræðu enda staðfesta gögn málsins, og sú staðreynd að lóðaskilmálum hefur nú verið breytt, það sem fram kom í málflutningi og bókun fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna varðandi skil á lóðum í Skarðshlíð.
Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi
Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir bæjarfulltrúi
Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi