fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirPólitíkBörnin okkar og skólinn

Börnin okkar og skólinn

Bjarney Grendal Jóhannesdóttir skrifar

Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum. Um leið og við þurfum að hvetja þau til dáða og skapa þeim tækifæri til að efla sig í gegnum áhugasvið sín og styrkleika þurfum við líka að gæta þeirra vel og vernda þau. Skólinn er þeirra vinnustaður. Þangað fara þau til að búa sig undir framtíðina.

Leikskólinn er fyrsta skóla­stigið og svo fikra þau sig áfram þar til þau útskrifast úr grunnskóla. Þegar þau ná þeim tíma­mótum viljum við að þau séu undirbúin til þess að velja sér frekari farveg til framhalds­menntunar og þátttöku í atvinnu­­lífi. Til þess að ná því að undirbúa þau á þess­um árum þarf að hlúa vel að skólakerfinu og styðja við bakið á kennurum. Það þarf að hafa öflugan stuðning inni í skólunum og tæki til að sinna þörfum ólíkra einstakl­inga því ekki gengur að steypa alla í sama mót.

Við viljum styðja við og efla skólakerfið. Börnin okkar eru framtíðin, það er okkar skylda að gera eins vel og við getum til að efla þá framtíð.

Bjarney Grendal Jóhannesdóttir 
skipar 2. sæti fyrir Miðflokkinn í Hafnarfirði.

 

Greinin birtist í Fjarðarfréttum 5. apríl 2018

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2