fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÚtivistHafnfirðingar, ungir sem aldnir blómstra á Landsmóti skáta

Hafnfirðingar, ungir sem aldnir blómstra á Landsmóti skáta

 

Þau eru ekki há í loftinu börnin sem taka þátt í Landsmóti skáta. Ljósmynd: Guðni Gíslason
Þau eru ekki há í loftinu börnin sem taka þátt í Landsmóti skáta. Ljósmynd: Guðni Gíslason

Ungir sem aldnir skátar dvelja nú á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni. Hafnfirðingar eru þar í fjölmörgum hlutverkum auk þeirra barna og unglinga sem þar taka þátt í hefðbundnu skátastarfi. Skátar úr Hraunbúum og skátagildunum í Hafnarfirði eru fjölmennir í starfsliði mótsins og í ábyrgðarstöðum. Bera þeir m.a. ábyrgð á nokkrum þeim veröldum sem þar eru starfandi og eru í mótsstjórn. Fólk dvelur gjarnan með fjölskyldum sínum og enginn er verkefnalaus og þeir yngstu fá að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.

Gaman en erfitt. Ljósmynd: Guðni Gíslason
Gaman en erfitt. Ljósmynd: Guðni Gíslason

Veður hefur leikið við mótsgesti en mikil fluga er við vatnið. Einhverjir regndropar í dag höfðu engin áhrif á mótsgesti en veðurspá fyrir næstu daga hefur verið að breytast ört. Ungu skátarnir eru vel búnir og hafa ekki áhyggjur af smámunum eins og veðri.

Ritstjóri Fjarðarfrétta er meðal þeirra fjölmörgu Hafnfirðinga sem starfa á mótinu og hefur haft í nógu að snúast við að kenna skátunum að byggja brýr og nota.

Fikra þurfti sig upp brúna án þess að falla niður í "straumhörðu ána". Ljósmynd: Guðni Gíslason
Fikra þurfti sig upp brúna án þess að falla niður í “straumhörðu ána”. Ljósmynd: Guðni Gíslason

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2