Landsleikurinn við Nígeríu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á risaskjá á Thorsplani á föstudag kl. 15.
Fjölmennt var á Thorsplani í rigningunni sl. laugardag er Ísland keppti við Argentínu og góð stemmning.
Áhugafólk um fótbolta og góða stemmningu er hvatt til að mæta með stóla og regnhlífar, því allt stefnir í rigningu á föstudaginn.