Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum lauk í dag á Akureyri. FH-ingar voru í miklum ham og fengu 32 verðlaun, 17 gull, 11 silfur og 4 brons. ÍR kom næst á eftir með 14 gull, 9 silfur og 5 brons.
FH fékk 37.450 stig, ÍR fékk 32.238 stig og Breiðablik fékk 16.847 stig.
FH-ingurinn Arna Stefanía Guðmundsdóttir fékk flest gullverðlaun á mótinu, fimm. Hún sigraði í 200 m hlaupi, 400 m hlaupi, 100 m grindahlaupi og var í sigursveit FH í 4×400 m boðhlaupi kvenna þar sem sveitin vann með miklum yfirburðum, var rúmum 15 sekúndum á undan sveit ÍR. Þá var hún í sigursveit FH í 4×100 m hlaupi kvenna.
Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH fékk flest gullverðlaun karla, fjögur samtals, í 100 m hlaupi, 200 m hlaupi og var í sigursveit FH í 4×100 m og 4×400 m boðhlaupi karla.
Öll úrslit má sjá HÉR.
Gullverðlaun FH-inga:
Nafn | grein | úrslit |
---|---|---|
Arna Stefanía Guðmundsdóttir | 200 metra hlaup kvenna | 24,21 |
Arna Stefanía Guðmundsdóttir | 400 metra hlaup kvenna | 53,91 |
Arna Stefanía Guðmundsdóttir | 100 metra grind (84 cm) kvenna | 13,86 |
Guðmundur Heiðar Guðmundsson | 110 metra grind (106,7 cm) karla | 15,16 |
Hilda Steinunn Egilsdóttir | Stangarstökk kvenna | 3,32 |
Hilmar Örn Jónsson | Sleggjukast (7,26 kg) karla | 68,33 |
Kolbeinn Höður Gunnarsson | 100 metra hlaup karla - Úrslit | 10,61 |
Kolbeinn Höður Gunnarsson | 200 metra hlaup karla - Úrslit | 21,48 |
Kormákur Ari Hafliðason | 400 metra hlaup karla | 50,30 |
María Rún Gunnlaugsdóttir | Hástökk kvenna | 1,66 |
Örn Davíðsson | Hástökk karla | 1,93 |
Örn Davíðsson | Spjótkast (800 gr) karla | 63,22 |
Vigdís Jónsdóttir | Sleggjukast (4,0 kg) kvenna | 57,11 |
A sveit FH | 4x100 metra boðhlaup kvenna | 47,35 |
A sveit FH | 4x100 metra boðhlaup karla | 42,40 |
Sveit FH | 4x400 metra boðhlaup kvenna | 3:56,06 |
Sveit FH | 4x400 metra boðhlaup karla | 3:27,88 |