fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMenning og mannlíf2,6 milljónir kr. veittar í menningarstyrki

2,6 milljónir kr. veittar í menningarstyrki

Þrettán aðilar hjóta styrki sem formlega verða veittir 27. nóvember nk.

Þrettán verkefni hljóta styrk menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar sem úthlutað verður 27. nóvember nk.

Styrkir nefndarinnar eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins.

Styrkirnir sem verða veittir eru samtals 2.595.000 kr. og samtals hefur nefndi þá úthlutað átta milljónum kr. í styrki til menningarmála á árinu.

Þeir sem hljóta styrki nefndarinnar að þessu sinni eru:

StyrkþegiVerkefniUpphæð
Leikfélag HafnarfjarðarFerðamaður deyr - leiksýning380.000 kr.
SveinssafnMyndlistasýning375.000 kr.
FlensborgarkórinnAfmælistónleikar Flensborgarkórsins325.000 kr.
JólahjónJólahjón - tónleikar300.000 kr.
Guðbjörg PálsdóttirDúkkulísur á jólum, tónleikar í Hafnarfirði á aðventu 2018240.000 kr.
Lúðrasveit HafnarfjarðarTónleikar Pollapönks, Lúðrasveitar og Kórs Öldutúnsskóla200.000 kr.
SpiccatoHaustlauf - tónleikar í Hafnarborg190.000 kr.
Duo UltimaDuo Ultima: tónleikar með verkum eftir frönsk tónskáld100.000 kr.
Soffía SæmundsdóttirDagar myndlistar - Opin vinnustofa Soffíu 4.-28.10.2018100.000 kr.
Andrés Þ. GunnlaugssonTónleikar 200.000 kr.
Leikfélag HafnarfjarðarHið vikulega 13 - hið barnalega   70.000 kr.
Ragnar Már JónssonHátíðardjass í Hafnarfirði - tónleikar   65.000 kr.
Leikfélag HafnarfjarðarHöfundanámskeið   50.000 kr.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2