fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanStóra ljósastauramálið

Stóra ljósastauramálið

Geir Gígja skrifar - greinin birtist í Fjarðarfréttum sem komu út 20. desember 2018

Þegar fór að hausta tókum við íbúarnir í raðhúsalengjunum tveim sem deila göngustíg eftir því að peran í eina ljósastaurnum hér á göngu­stígnum var farin. Ég hafði samband við bæinn og bað þau um að skipta um peru líkt og bærinn hafði gert frá því að húsin voru byggð í kringum 1980. Bjuggumst við íbúarnir við því að þetta yrði auðsótt mál líkt og áður en það var nú ekki og hófst nú stóra ljósa­staura­málið.

Fyrstu svör frá bænum voru á þá leið að staurinn væri innan lóðamarka og því ætt­um við að sjá um að skipta um peru.

Var bænum bent á að þeir hefðu séð um þetta alla tíð. Alveg sama, staurinn er innan lóðamarka og því ættum við að sjá um peruskiptin.

Var bænum bent á að það væri ekki jafnræði á milli íbúa götunnar þar sem sumir hafa ljósastaur í sinni götu sem bærinn sér um en aðrir þurfa greinilega að sjá um staurana sjálfir. Þau rök höfðu ekki heldur áhrif.

Var bænum þá bent á það að þeir greiddu rafmagn af staurnum og sjá því um rekst­urinn af honum. Alveg sama, það hefðu verið mistök á sínum tíma (um 1980) og við eigum að sjá um peruskiptin.

Bærinn bauð okkur hins veg­ar um að leiðrétta þessi mistök og tengja rafmagnið í staurnum inn á okkur. Ég spurði þá á hvern okkur íbúanna ætti að tengja þar sem þetta eru raðhús og engin sameign en þar hefur verið fátt um svör.

Bænum hefur einnig verið bent á að það séu tvær rað­húsa­lengjur sem sam­nýti þennan eina ljósastaur, eigum við þá að skiptast á að hafa hann tengdan inn á okkur? Ljósastaurinn er að vísu nær annarri lengjunni og því kannski réttast að sú lengja borgi þetta? Einnig er ljósa­staurinn beint fyrir framan eina íbúðina í þessari lengju og því kannski langréttast að hann borgi þetta? Að minnsta kosti á bærinn greinilega ekki að borga þetta þrátt fyrir að hann hafi gert það í næstum 40 ár og þrátt fyrir að bærinn sjái um að greiða rafmagnið.
Í tölvupósti þann 15. október var loka­svarið að lögmaður bæjarins yrði beðinn um álit á þessu en það hefur ekki borist okkur ennþá næstum tveim mánuðum síðar.

Einnig fékk bæjarstjórinn tölvupóst þann 27. október um stóra ljósastaura­málið en hún hefur heldur ekki svarað þeim pósti.

Að eyða tíma starfsmanna bæjarins og lögmanns og jafnvel að aftengja ljósastaurinn og tengja hann svo aftur inn á einhverja íbúa raðhúsanna (eða alla) er greinilega betri ráðstöfun á fjármunum bæjarins en að skipta um eina peru.

Geir Gígja, íbúi í Hvammahverfinu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2