fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirVeggjatítlur fundust í þaksperrum safnaðarheimilis Fríkirkjunnar

Veggjatítlur fundust í þaksperrum safnaðarheimilis Fríkirkjunnar

Formaður safnaðarstjórnar segir enga hætta á ferðum

Við skoðun löggilts meindýraeyðis á safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnar­firði á Linnetsstíg 6 nýlega kom í ljós að veggjatítlur eru í þakviði hússins.

Ummerki eftir veggjatítlur í þaksperru safnaðarheimilisins

Í mati segir að ummerki eftir veggja­títlur séu í nánast öllum þaksperrum. Enn fremur fundust dauðar bjöllur og við greiningu kom í ljós að um full­orðnar veggjatítlur var að ræða. Ein­göngu eru títlur í viðnum í þakinu skv. tilkynningu frá kirkjunni.

Húsið Linnetsstígur 6 er byggt árið 1920. Það er þrílyft timburhús með steyptum kjallara/fyrstu hæð. Fríkirkju­söfnuðurinn í Hafnarfirði hefur átt húsið og nýtt undir safnaðarheimili í um 20 ár. Safnaðarheimilið er í notkun nánast alla daga og að auki eru þar skrifstofur og viðtalsherbergi tveggja presta safnaðarins og annars starfsfólks.

Veggjatítlan þrífst helst í rökum viði og telja menn mögulega að hún hafi grasserað þarna í marga áratugi.

„Þetta er Fríkirkjunni þungbært og ljóst að óbætt tjón getur hlaupið á tugum milljóna króna,“ segir Einar Sveinbjörnsson, formaður safnaðar­stjórnar.

Í turni kirkjunnar, sem er einnig byggð úr timbri árið 1913, fundust í sömu skoðun gömul og mjög stað­bundin ummerki eftir títlur hugsanlega frá fyrri tíð.

Gömul ummerki um títlur fundust í turni kirkjunnar.

Segir Einar að mikil áhersla verði lögð á það að auka eftirlit og verja kirkjuna.

Safnaðarstjórn hefur ákveðið að fara að ráðum fagaðila og hefja nú þegar vinnu sem lýtur að því að hefta frekari út­­breiðslu. Það er gert með hitun og eitrun.

Segir Einar enga hættu vera á ferðum fyrir þá sem heimsækja safnaðar­heimilið. Veggjatítlan smitast ekki eða ferðast með fólki. „Þær eru saklausar að öðru leyti en því að þær éta í sundur burðarvið á löngum tíma,“ segir Einar.

„Þrátt fyrir þessa ágjöf er Fríkirkju­söfnuðurinn í Hafnarfirði sterkur í sínu samfélagi og mun finna leiðir og lausnir með sínu fólki og í samstarfi aðila til að laga og jafnvel endurbyggja að mestu safnaðarheimilið á Linnetsstíg 6 í hjarta Hafnarfjarðar,“ segir Einar Svein­björns­son í tilkynningu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2