fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirYngstu meðlimir Rithöfundasambandsins

Yngstu meðlimir Rithöfundasambandsins

Hafnfirðingarnir Arnór og Óli Gunnar bóka- og leikritshöfundar

Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson urðu yngstu meðlimir í Rithöfundasamband Íslands er sambandið staðfesti inngöngu þeirra í desember sl. Þeir eru báðir 19 ára.

Til þess að fá aðild að Rithföundasambandinu þarf rithöfundur að hafa skrifað og sett upp tvær sýningar í atvinnuleikhúsi eða skrifað og gefið út tvær bækur hjá viðurkenndu bókaforlagi. Fyrsta leikverkið – Unglingurinn – skrifuðu þeir þegar þeir voru 13 og 14 ára og fyrsta bókin þeirra – Leitin að tilgangi unglingsins – fylgdi svo árið eftir en hún var skrifuð í samvinnu við Bryndísi Björgvinsdóttur.

Árið 2016 kom annað leikverk þessara ungu höfunda og hét það Stefán rís. Aldrei hafa jafn ungir höfundar skrifað svo mörg leikverk sem hafa verið sett upp í atvinnuleikhúsi. Sýningin „Fyrsta skiptið“, sem enn er í sýningu í Gaflaraleikhúsinu, er þeirra þriðja leikverk en þeir skrifuðu það ásamt öðrum í leikhópnum. Sýningin hefur gengið fyrir fullu húsi í allan vetur og hefur verið uppselt á allar sýningarnar.

„Það er Gaflaraleikhúsinu mikill heiður að hafa fóstrað þessa tvo yngstu meðlimi Rithöfundasambandsins frá upphafi ferils þeirra sem rithöfundar og leikskáld,“ segir Lárus Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Gaflaraleikhússins.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2