Leikskólalífið – hagsmunir hverra ráða för? er yfirskrift málþings sem haldið verður á fimmtudaginn kl. 17-19 í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju.
Á málþinginu verður fjallað um leikskólalífið þar sem m.a. verður velt upp spurningunni um hagsmuni þeirra sem ráða för. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Dagskrá málþingsins:
Samfélagsleg viðhorf til barna – gömul og ný.
– Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir
Er ég kennari númer 1,2,3, eða 4? – Dagur leikskólakennara.
– Anna Vala Arnardóttir leikskólakennari
Foreldrahlutverk í nútíma samfélagi.
– Kristín Erla Pétursdóttir foreldri leikskólabarns
Að málþinginu standa fræðslu- og frístundaþjónusta og faghópur um bættar starfsaðstæður í leikskólum.