fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirStórmót í badminton hefst í dag í Hafnarfirði

Stórmót í badminton hefst í dag í Hafnarfirði

Meistaramót Íslands í badminton verður haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu

Um helgina verður Meistaramót Íslands í badminton haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Á mótinu er keppt um Íslandsmeistaratitla í fullorðinsflokkum og mun allt besta badmintonfólk landsins taka þátt.

Til leiks eru skráðir 130 keppendur frá níu félögum víðsvegar af landinu. Flestir keppendur koma úr TBR eða 63 en næst fjölmennastir eru keppendur úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, 39 talsins. Aðrir keppendur koma frá Aftureldingu, Hamri, ÍA, KA, KR, Samherja og UMFB.

Frítt er inn á keppnina og kaffi á könnunni alla helgina og á sunnudag eftir hádegi verður boðið uppá köku. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og fylgjast með spennandi keppni.

Föstudagur

  • kl. 16 – 21 Fyrstu umferðir mótsins

Laugardagur

  • kl. 09:00 – 14:00 Sextán og átta liða úrslit
  • kl. 14:30 – 18:30 Undanúrslit

Sunnudagur

  • kl. 08:30 – 11:00 Úrslitaleikir í A- , B- , æðsta- og heiðursflokki
  • kl. 12:45 – 17:00 Úrslitaleikir í meistaraflokki

Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna á tournamentsoftware.com.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2