![Sigmaður sækir næst síðasta manninn úr sjónum. Ljósmynd: Guðni Gíslason](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/Björunaræfing-Hafnarfjarðarhöfn-þyrla-100-300x200.jpg)
Ljósmynd: Guðni Gíslason
Fjölmargir fylgdust með þegar þyrla Landhelgisgæslunnar sveimaði yfir ytri höfninni í Hafnarfirði strax eftir hádegi í dag. Voru nokkrar vangaveltur um það hvað hafi gerst en stór björgunarbátur var á sjónum, og minni gúmmíbátar auk þess sem sjá mátti fólk í sjónum.
Engin hætta var þó á ferð því hér var Landhelgisgæslan að æfa björgun fólks úr sjónum og tóku þátt skipverjar á skemmtiferðaskipinu L‘Austral sem lá við bryggju í Hafnarfirði.
![Þyrlan lenti með "skipsbrotsmennina" við hlið skemmtiferðaskipsins. Ljósmynd: Guðni Gíslason](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2016/08/Björunaræfing-Hafnarfjarðarhöfn-þyrla-132-300x200.jpg)
Ljósmynd: Guðni Gíslason
Gríðarleg fjölgun skemmtiferðaskipa hér við land hefur kallað á sérstakar æfingar og eru þær gerðar með jöfnu millibili.
Eftir að hafa sótt fólk úr björgunarbátum kom þyrlan aftur og sótti fólk sem var í sjónum og lenti með það við hlið skemmtiferðaskipsins.