Móðir hvetur foreldra til þess að gæta þess að þau og/eða börnin séu í skóm þegar vaðið er í Hvaleyrarvatni. Hafði hún verið þar um daginn í góða veðrinu og steig dóttir hennar á glerbrot.
Fékk djúpan skurð
Stúlka fékk djúpan skurð á ilina sem tekur tíma að gróa og veldur því að dagarnir hafa ekki verið alveg eins skemmtilegir eins og þeir hefðu getað orðið.
„Hafnarfjarðarbær mætti sjá sóma sinn í því að hreinsa til í flæðamálinu eins og hægt er,“ segir móðirin og segir að gestir mættu einnig ganga vel um þessa perlu okkar og skilja ekki eftir rusl sem getur slasað aðra.