fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirUmhverfiðSnyrtileika hampað og garðar verðlaunaðir

Snyrtileika hampað og garðar verðlaunaðir

Átta viðkurkenningar veittar

Íbúar sendu inn 15 ábendingar um snyrtilega og fallega garða í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær veitir viðurkenningu fyrir fallega garða og snyrtimennsku í kringum fyrirtæki og félagasamtök ár hvert undir heitinu „Snyrtileikinn“.

Verðlaunahafar í Snyrtileikanum 2019.

Í ár bárust 15 ábendingar frá bæjarbúum um fallegasta garð­­inn, fallegustu lóðina við fyrir­tæki og einnig bárust til­nefningar um fallegar lóðir hjá félagasamtökum ásamt fjöl­býl­is­húsalóð. Engin tilnefning kom vegna götu og er því engin gata í bænum í ár útnefnd stjörnugata.

Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar kynnti trjáplöntur sem verðlaunahafar fengu.

Eftirtaldar lóðir voru verð­launaðar:

Fjóluhvammur 3

Fjóluhvammur 3

Þessi er garður hefur verið fallegur um árabil. Greinilega gott viðhald og mikið af falleg­um og stæðilegum plöntum. Aðkoma að húsi tekur á móti gestum og gangandi. Fallegt og skjólsælt dvalarsvæði við hús. Þessi garður hefur afgerandi hlutverk í fallegri götumynd.

FJóluhvammur 3

Garðavegur 6b

Garðavegur 6b

Sannkallaður verðlauna­garður þar sem nostrað hefur verið við hvert smáatriði og mikil ást og umhyggja lögð í garðinn. Garðurinn er lítill en öllu er hagalega fyrir komið og hver hlutur á sinn stað. Að­­koma að húsi, ásamt húsinu sjálfu, er smekkleg og snyrti­leg.

Garðavegur 6b

Heiðvangur 18

Heiðvangur 18

Mjög fallegur garður þar greinilegt er að mikill áhugi á garðrækt er til staðar. Fjölbreytt úrval plantna og rósa með fallegu samspili palla, hellu­lagðra flata og grass. Lítil tjörn með vatnaliljum og stendur þar garðskáli. Hvert sem litið er, er fjölbreytni mikil og öll rými vel úthugsuð.

Heiðvangur 18

Hrauntunga 14

Hrauntunga 14

Hér er greinilega mikill garð­yrkjuáhugi á ferð. Mikil fjöl­breytni í gróðri og allt viðhald garðsins til fyrir­myndar. Alls staðar er búið að nostra við hvert smáatriði og sérs­taklega gaman er sjá hversu útsjónarsamir eigendur hafa verið og byggt hús uppá gömlum trjástofni. Pallurinn tengist húsi á smekklegan hátt með litlu húsi fyrir unga fólkið. Snyrtimennskan er hér til fyrirmyndar og handbragð allt.

Hrauntunga 14

Lindarberg 52

Lindarberg 52

Mjög snyrtilegur og fallegur garður með mikla fjölbreytni í gróðri. Þegar inn í garðinn er komið eru skemmtilegar hellu­lagðar gönguleiðir og öll beð vel snyrt og garðurinn í heild sinni mjög snyrtilegur. Mjög fallegur og gróinn garður í Set­berginu. Aðkoma að húsi aðlaðandi og tekur vel á móti gestum.

Lindarberg 52

Suðurgata 9

Suðurgata 9

Hér hefur verið tekið til hendinni, garðurinn er nútíma­legur með fallegum dvalar­svæðum með skemmti­legri lýsingu og mjög fallegum plöntum í mismunandi kerjum og pottum. Hugvitsamlega raðað upp og býr dvalarsvæðið til einskonar auka herbergi við húsið. Gróðurinn er fjölbreyttur og greinilega mikill áhugi á garðyrkju hér á ferð.
Snyrti­legasta fjölbýlis­húsalóðin

Suðurgata 9

Skipalón 5

Skipalón 5

Mjög skemmtileg og falleg fjölbýlishúsalóð við Skipalón 5 þar sem aðkoma að húsi er mjög snyrtileg og bakgarðurinn var fallegur með vel sleginni grasflöt með fallegum trjá- og runnabeðum ásamt garð­húsgögnum fyrir gesti og íbúa lóðarinnar. Lítið en fallegt leik­svæði tengist vel inn á dvalar­svæðið. Falleg sumar­blóm í öllum beðum. Þessi lóð er til fyrirmyndar.

Skipalón 5

Heiðurs­verðlaun

Kirkjugarður Hafnarfjarðar fékk heiðursverðlaun í ár.

Kirkjugarður Hafnarfjarðar

Í áranna rás hefur kirkju­garður Hafnarfjarðar verið sérstaklega snyrtilegur og fallegur. Mikill metnaður er lagður í hönnun og útfærslu hina mismunandi svæða og eru öll rými sérstaklega vel útfærð og í góðu samtali við húsbyggingar og einnig þá starfsemi sem garðurinn á að þjóna. Gönguleiðir eru snyrti­legar og upplýstar, aðstaða til að sinna leiðum ástvina er óaðfinnanleg. Allur frágangur opinna svæða hefur ávallt verið til mikillar fyrirmyndar og ekki síst um jólin en Hafnar­fjarðarkirkjugarður á stóran þátt í að koma bænum í hátíðarskap með sínum fallegu ljósum á leiðum garðsins.

Kirkjugarðar Hafnarfjarðar eru sómi bæjarins og fær því heiðurskjöldinn í ár.

Arnór Sigurðsson og Hjalti Jóhannsson tóku við viðurkenningarskildi fyrir Kirkjugarð Hafnarfjarðar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2