fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniAllir geta verið með í Flensborgarhlaupinu á þriðjudag

Allir geta verið með í Flensborgarhlaupinu á þriðjudag

Hlaupið til styrktar Berginu „headspace“

Nú styttist í hið árlega Flensborgarhlaup sem allir í fjölskyldunni geta tekið þátt í. Er hlaupið orðið áberandi en nú hefst hlaupið og því lýkur í miðbæ Hafnarfjarðar.

Hlaupið fer nú fram í níunda sinn þriðjudaginn 17. september kl.17.30.

Allt starf við hlaupið er unnið í sjálfboðavinnu af starfsfólki og nemendum Flensborgarskólans með dyggum stuðningi frá Hlaupahópi FH, Skokkhópi Hauka og Hafnarfjarðarbæ.

Allur ágóði til góðgerðarmála

Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála og í ár rennur ágóði þess óskiptur til „Bergsins Headspace“, en Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur sem veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna upp að 25 ára aldri.

Hlaupavegalengdir

Eins og áður er boðið uppá þrjár vegalengdir, 10 km og 5 km með tímatöku og 3 km án tímatöku. Hlaupið hefst við strætisvagnaskýlið á Fjarðargötu gegnt íþróttahúsinu (við Strandgötu) og hlaupið er á göngustígnum í átt að Álftanesi og út á Álftanes fyrir þá sem hlaupa 10km. Farin er sama leið til baka niður á Fjarðargötu.

Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.

Verðlaunaafhending

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki. Aldurflokkar eru tveir: 17 ára og yngri og 18 ára og eldri. Einnig verða fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna sem allir eiga möguleika á.

Verðlaunaafhending hefst kl 18.30 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, en þar verður einnig heitt á könnunni og næring fyrir hlaupara að hlaupi loknu.

Skráning

Skráning er á hlaup.is til kl. 12 á hádegi á hlaupadegi. Ekki er hægt að skrá sig á staðnum en afhending keppnisgagna hefst kl. 16 á hlaupadegi í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.

Verð á skráningu fyrir miðnætti sunnudaginn 15. september:

  • Allar vegalengdir 750 kr fyrir 20 ára og yngri (f. 1999 og síðar)
  • 3 km hlaup – 1.250 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
  • 5 km og 10 km hlaup – 1.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)

Verð á skráningu frá og með mánudaginn 16. sept til kl. 12 á hlaupdag:

  • Allar vegalengdir 1.000 kr fyrir 20 ára og yngri (f. 1999 og síðar)
  • 3 km hlaup – 1.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)
  • 5 km og 10 km hlaup – 2.750 kr fyrir 21 árs og eldri (f. 1998 og fyrr)

Á heimasíðu hlaupsins www.flensborgarhlaup.is má fá nánari upplýsingar um hlaupið og nákvæma lýsingu á hlaupaleiðum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2