fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanRáðuneytið telur ekki tilefni til aðgerða vegna FH málsins

Ráðuneytið telur ekki tilefni til aðgerða vegna FH málsins

Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar

Í ágúst 2018 voru ákvarðanir bæjar­ráðs og bæjarstjórnar Hafnarfjarðar kærðar til samgöngu- og sveitar­stjórnarráðuneytisins; annars vegar varðandi framkvæmdir á Kaplakrika og hins vegar vegna rammasamkomulags og viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árin 2018-2021. Álit sam­göngu– og sveitarstjórnar­ráðu­neytisins var kynnt á fundi bæjarráðs þann 26. sept­ember síðastliðinn.

Málið rekið áfram af tilfinningalegri heift

Ég hef sagt það áður, bæði á fundum og við einstaka fulltrúa minnihlutans, að mér hafi þótt framganga þeirra og málflutningur í málinu hafa farið út fyrir alla skynsemi. Málið var rekið áfram af tilfinningalegri heift í garð nýs meirihluta, í minn garð og bæjarstjóra. Það verður ekki hjá því komist að nefna ótrúlega orðræðu og sömu heift þessara fulltrúa minnihlutans gagnvart fram­kvæm­dinni sjálfri, einu tilteknu íþrótta­félagi hér í bænum, Fim­leikafélagi Hafnarfjarðar, og einstaka persónum sem þar hafa verið í forsvari.

Niðurstaða ráðuneytisins skýr

Álit ráðuneytisins staðfestir að afgreiðsla bæjarráðs 8. ágúst 2018 á rammasamkomulagi um framkvæmdir á Kaplakrika hafi verið í samræmi við heimildir og engar athugasemdir eru gerð­ar við fundarboð og með­ferð málsins á bæjarstjórnar­fundi viku síðar. Ráðuneytið gerir ekki heldur athugasemdir við greiðslu á 100 milljónum króna sam­kvæmt ramma­sam­komu­lag­inu þann 16. ágúst 2018, þar sem viðauki við fjárhags­áætlun hafi verið samþykktur í bæjarstjórn, sex dögum síð­ar, þann 22. ágúst. Ráðuneytið telur þó að réttara hefði verið að staðfesta viðauka áður en greiðslan fór fram og verður það sjónar­mið haft til hliðsjónar hjá Hafnar­fjarðarbæ við afgreiðslu sam­bærilegra mála í framtíðinni. Er það mat ráðu­neytisins að þessi ágalli hafi engin áhrif á lögmæti greiðslunnar og því sé ekki tilefni til frekari aðgerða í málinu.

Málinu lokið

Nú er málinu loks lokið með þessu áliti ráðuneytisins og ég skal alveg viðurkenna það að mér er persónulega létt. Eftir situr hins vegar ákveðinn lærdómur, bæði hvað varðar samskipti manna í millum og varðandi þær ábendingar ráðuneytisins um það hvað betur megi fara í sambærilegum málum í framtíðinni. Ég vona að við getum öll verið sammála um það.

Ágúst Bjarni Garðarsson,
formaður bæjarráðs.

Greinin birtist fyrst í fréttablaðinu Fjarðarfréttum 2. október 2019

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2