Hafnfirðingar hafa nú náð þeim áfanga að vera orðnir þrjátíuþúsund talsins.
Frá síðustu aldamótum hefur íbúum fjölgað í Hafnarfirði um 56% á meðan íbúum í Reykjavík hefur fjölgað um 63%, íbúum í Kópavogi um 74%, íbúum í Garðabæ um 74% og íbúum í Mosfellsbæ um 95%.
Verulega hafði þá hægt á fjölgun í Hafnarfirði. Mest hefur fjölgun milli ára eftir aldamót verið 5,6% milli áranna 2006 og 2007 en frá árinu 2011 hefur fjölgunin verið 0,9 – 2,5%.
Búast má við að fjölgunin verði með meira móti á næsta ári en fjölmörg fjölbýlishús eru í byggingu í bænum sem ætti að vera hægt að flytja inn í á næsta ári.
Hafnfirðingurinn sem skilgreindur er þrjátíuþúsundasti Hafnfirðingurinn er lítil stúlka fædd 15. október síðastliðinn, dóttir hjónanna Helgu Rúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Fannars Grétarssonar. Þau hjónin eiga fyrir fimm ára dreng og festu kaup á sinni fyrstu íbúð í suðurbæ Hafnarfjarðar fyrir rétt um ári síðan. Helga Rún er fædd og uppalin í Hafnarfirði en Sigurður er Ísfirðingur.
Stúlkan fékk skjal og listaverk frá bænum sínum til vitnis um að hún sé íbúi númer 30.000. Afhenti Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri gjöfin er hún heimsótti fjölskylduna í gær. Stóri bróðir fékk fallega bók að gjöf auk þess sem í glaðningum leyndust umhverfisvænar vörur fyrir litlu systur; þvottaklútur, handklæði og fyrsti tannburstinn. Saman fékk fjölskylda bókina Ró eftir þær Evu Rún Þorgeirsdóttur og Bergrúnu Írisi sem inniheldur einfaldar æfingar fyrir krakka og fullorðna til að framkalla slökun og innri ró.