fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimUmræðanSlök rekstrarafkoma bæjarsjóðs og auknar álögur á viðkvæma hópa

Slök rekstrarafkoma bæjarsjóðs og auknar álögur á viðkvæma hópa

Adda María Jóhannsdóttir og Friðþjófur Helgi Karlsson skrifa

Fjárhagsáætlun er pólitísk stefnu­yfirlýsing. Í henni birtast stefna og forgangsröðun þeirra flokka sem sitja í meirihluta hverju sinni. Um leið og fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir lakari rekstrarniðurstöðu og samdrætti í fram­kvæmdum birtist í henni forgangsröðun frjálshyggjunnar þar sem lögð er áhersla á að vernda þá efnameiri um­­fram hina tekjulægri.

Rekstrarafkoma á niðurleið

Rekstrarniðurstaða A-hluta bæjar­sjóðs er einungis áætluð um 15 milljónir en tekjur B-hluta fyrirtækja, hafnar­sjóðs, vatns- og fráveitu, hækka heildar­niðurstöðuna. Staða bæjarsjóðs hefur farið hríðversnandi frá árinu 2017 þeg­ar rekstrarniðurstaða var um helmingi hærri en áætlanir fyrir árið 2020 gera ráð fyrir. Gjöld hækka umfram tekjur og veltufé frá rekstri lækkar. Við blasir að stórlega verður dregið úr fram­kvæmdum og lítið sett í umhverfismál.

Lífskjarasamningar­ virtir að vettugi

Um leið og lagt er til að útsvarshlutfall verði óbreytt og sá tekjustofn sveitar­félagsins þar með ekki fullnýttur, á að sækja tekjur til eldri borgara, öryrkja og tekjulágra. Fullyrt er að standa eigi vörð um velferðina en þó er lagt til að heimaþjónusta eldri borgara og öryrkja hækki um 24,5%, akstursþjónusta eldri borg­ara um rúm 100% og leiga í félags­legu húsnæði um 21%. Með þessum hækkunum gefur meirihluti bæjar­stjórnar Hafnarfjarðar lífskjarasamn­ingum langt nef og sendir eldri borg­urum, öryrkjum og tekjulágum íbúum sveitarfélagsins kaldar (jóla)kveðjur. Á sama tíma hefur Samband íslenskra sveitarfélaga gefið út skýr tilmæli um að gjaldskrár hækki ekki umfram 2,5% til að styðja við lífskjarasamninga ríkis­ins, atvinnurekenda og verkalýðs­hreyfingarinnar. Þá er einnig ófyrirséð hvaða áhrif hækkun á fasteignamati kemur til með að hafa á hafnfirsk heimili.

Öllum breytingar­tillögum Samfylkingar­innar hafnað

Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram breytingatillögur við fjárhags­áætlun þar sem við meðal annars lögð­um til að fallið yrði frá gjaldskrár­hækkunum umfram 2,5%. Einnig lögð­um við til að útsvarshlutfall yrði full­nýtt, m.a. til að verja þessa hópa sem hækkanirnar taka til. Þá lögðum við til niðurgreiðslu á strætókortum fyrir börn, hækkun á frístundastyrk til eldri borgara og uppbyggingu leikskóla í Öldu­túnsskólahverfi. Skemmst er frá því að segja að tillögunum var öllum hafnað.

Jöfnuður og öflug velferðarþjónusta

Velferðarstefna Samfylkingarinnar hvílir á hugmyndum um félagslegt réttlæti og jöfnuð. Samfylkingin getur því ekki stutt tillögur um að sveitarfélagið afsali sér tekjum með því að fullnýta ekki útsvarshlutfall, sem gagnast best þeim sem hæstar tekjurnar hafa, á sama tíma og gjaldskrár á aldraða, öryrkja og tekjulága íbúa eru hækkaðar. Við viljum samfélag jöfnuðar sem styður við alla og einkum þá sem mest þurfa á stuðningi að halda.

Adda María Jóhannsdóttir,
Friðþjófur Helgi Karlsson
bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2