fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniFlugeldasýning kl. 20.30 í kvöld

Flugeldasýning kl. 20.30 í kvöld

Hvar er best að horfa á hana?

Flugeldasýning Björgunarsveitar Hafnarfjarðar verður í kvöld, 29. desember kl. 20.30.

Björgunarsveitin bendir á að gott verðru að horfa á sýninguna frá göngustígnum á hafnarsvæðinu gegnt Hvaleyrinni. Einnig sést sýningin vel frá bílaplani sveitarinnar við Lónsbraut og einnig á Hvaleyrarbraut, Herjólfsgötu, Fjarðargötu og fleiri stöðum.

Skotið verður upp frá Hvaleyri og er svæði lokað í kringum skotstaðinn í öryggisskyni.

Flugeldasala sveitarinnar er opin kl. 10-22 í dag og á morgun og á gamlársdag er opið kl. 9-16. Sölustaðir eru þrír, í björgunarmiðstöðinni við Lónsbraut, við Hvalshúsið, Reykjavíkurvegi og við Tjarnarvelli. Þá er vefverslun opin allan sólarhringinn flugeldar.spori.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2