fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirKomugjöld í heilsugæslustöð lækka ef þú kemur í heimastöð

Komugjöld í heilsugæslustöð lækka ef þú kemur í heimastöð

Fella á niður komugjöld í dagvinnutíma á heilsugæslustöð 2021

Almenn komugjöld í heilsugæslustöð lækkuðu um áramótin úr 1.200 krónum í 700 krónur.

Lækkunin er bundin við komur fólks á dagvinnutíma á heilsugæslustöðinni þar sem það er skráð. Leiti fólk á aðra heilsugæslustöð er komugjaldið óbreytt, 1.200 krónur. Börn, öryrkjar og þeir sem eru 67 ára og eldri greiða ekki komugjöld í heilsugæslu. Áformað er að fella komugjöld í heilsugæslu á dagvinnutíma niður að fullu á næsta ári og er það liður í fleiri aðgerðum til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga, líkt og heilbrigðisráðherra kynnti í desember síðastliðnum. Þar á meðal eru auknar niðurgreiðslur sjúkratrygginga vegna tannlæknisþjónustu, lyfjakostnaðar og tiltekinna hjálpartækja, auk rýmri reglna um ferðakostnað sjúklinga.

Gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækkuðu um 2,5%. Bótafjárhæðir slysatrygginga almannatrygginga og dagpeningar sjúkratryggðra hækkuðu um 3,2%.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2