fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÁ döfinniMálstofa um Guðjón Samúelsson

Málstofa um Guðjón Samúelsson

laugardaginn 11. janúar milli kl. 11–13

Arkitektafélag Íslands og Hafnarborg standa fyrir málstofu um Guðjón Samúelsson í Hafnarborg á laugardaginn 11. janúar milli kl. 11–13.

Fjallað verður um Guðjón Samúelsson og verk hans skoðuð og metin af fimm þátttakendum sem kynnst hafa byggingarlist hans í störfum sínum á ýmsum sviðum. Í Hafnarborg hefur undanfarna mánuði staðið yfir sýning á verkum Guðjóns Samúelssonar en sýningunni lýkur á sunnudaginn.

Frummælendur á málstofunni verða Guðni Valberg, arkitekt, Sigurður Einarsson, arkitekt, Sigríður Björk Jónsdóttir, byggingarlistsagnfræðingur og skipulagsfræðingur, Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt, og Pétur H. Ármannsson, arkitekt og annar sýningarstjóri sýningarinnar í Hafnarborg. Fundarstjóri er Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar og annar sýningarstjóri sýningarinnar.

Í lok málstofunnar verða umræður milli frummælenda og áhorfenda sem Ágústa mun stýra.

Guðjón Samúelsson er án efa einn áhrifamesti arkitekt landsins og eru verk hans fyrir löngu orðin kennileiti um landið allt. Guðjón lék einnig lykilhlutverk í skipulagi höfuðborgarinnar og þar af leiðandi nútímavæðingu hennar. Hinn 20. apríl næstkomandi verða liðin 100 ár frá því að Guðjón Samúelsson tók við starfi húsameistara ríkisins. Réttu ári fyrr lauk hann háskólanámi í arkitektúr, fyrstur Íslendinga.

Í tilefni síðustu sýningarhelgarinnar verður einnig boðið upp á leiðsögn um sýningu Hafnarborgar með sýningarstjórum laugardaginn 11. janúar og sunnudaginn 12. janúar kl. 14.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2