fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirÁróra og Arndís og Hekla Sif sigruðu með glæsilegum söng

Áróra og Arndís og Hekla Sif sigruðu með glæsilegum söng

Ótrúlega hæfileikaríkir krakkar

Söngkeppni félagsmiðstöðva grunnskóla Hafnarfjarðar var haldin í Bæjarbíói í gærkvöldi.

Alls sendu sjö félagsmiðstöðvar fulltrúa í keppnina, þrettán atriði þar sem fram komu samtals 18 einstaklingar.

Það er hægt að fullyrða að söngur keppenda var einstaklega glæsilegur í ár og keppendur hverjum öðrum glæsilegri. Öryggi í framkomu og söng einkenndi framlög félagsmiðstöðvanna og áhorfendur voru vel með á nótunum og fögnuðu söng keppendanna vel.

Alls voru söngvararnir 14, allt stúlkur og lagavalið var fjölbreytt. Þarna mátti heyra, lög eins og Imagine, Killing me softly, You let me walk alone, Madworld, Creep og mörg fleiri sem stúlkurnar túlkuðu hver á sinn einstaka hátt.

Það var því ekki létt verk fyrir dómarana, Katrínu söngvara í Rokkkór Íslands, Arnar Dór söngvara og Hafstein Níelsson lagasmið að skera úr um það hvaða söngvarar yrðu í efstu sætunum.

Það var til mikils að vinna því tvö efstu sætin gefa þátttökurétt í keppni Samfés í Laugardalshöll.

Eftir góðan umhugsunartíma stigu svo dómararnir fram á svið og kynntu niðurstöðu sína.

Frá vinstri: Arndís Dóra Ólafsdóttir og Áróra Eyberg Valdimarsdóttir úr Öldunni og Hekla Sif Óðinsdóttir úr Skarðinu en þær skiptu með sér fyrsta sæti; Tinna Guðrún Petersen Jóhannsdóttir úr Hrauninu sem varð í 2. sæti og  Luciana Fernandez Gomez úr Verinu sem varð í 3. sæti.

Í þriðja sæti varð Luciana Fernandez Gomez (15) úr Verinu en hún söng lagið Killing me softly.

Í öðru sæti varð Tinna Guðrún Petersen Jóhannsdóttir (15) úr Hrauninu en hún söng lagið Creep.

Tvær félagsmiðstöðvar urðu í 1. sæti og taka þátt í úrslitakeppni Samfés:

Áróra Eyberg Valdimarsdóttir (13) og Arndís Dóra Ólafsdóttir (13) úr Öldinni en þær sungu lagið Mad World.

Hekla Sif Óðinsdóttir (13) úr Skarðinu en hún söng lagið Skysscraper. Hekla Sif söng einnig með Perlu Dís í öðru atriði sem þó ekki komst í úrslit.

Hér má sjá nokkrar af þeim myndum sem ljósmyndari Fjarðarfrétta tók. Sjá nánar um kaup á ljósmyndum hér.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2