Sýning Rósu Sigurbergsdóttur „Stóla á þig“ í verður opnuð kl. 14 á laugardaginn í Litla gallerýinu að Strandgötu 19.
Rósa er fædd í Hafnarfirði 1957. Hún stundaði nám í Verzlunarskóla Íslands og Kennaraskóla Íslands og hefur kennt í Öldutúnsskóla frá 1982.
Náttúran og útivist hafa verið henni hugleikin alla tíð og hefur hún stundað ferðalög um allt land og þá gjarnan farið á fáfarnar slóðir og jafnan haft myndavélina með sér. Hún hefur tekið mikið af ljósmyndum í gegnum tíðina. Rósa hefur alla tíð haft mikinn áhuga á myndlist og stundað myndlistasýningar hér heima og erlendis. Árin 2007-2008 stundaði hún nám við Endurmenntun Kennaraháskóla Íslands, lagði áherslu á listgreinar. Hún komst þá í náin kynni við leirlist og olíumálun sem heillaði hana.
Rósa naut handleiðslu Jóns Reykdal á þessum tíma og hefur stundað málun síðan þá. Rósa hefur sótt námskeið í málun í Myndlistaskólanum í Reykjavík og Myndlistarskóla Kópavogs um árabil.
Hún hélt einkasýningu í Íshúsi Hafnarfjarðar vorið 2016, sem var vel tekið. Nánasta umhverfi í Hafnarfirði og nágrenni fangar gjarnan athygli Rósu. Hún á það til að smella af myndum af því sem vekur hughrif og það kemur fyrir að þessi mótíf rata á strigann.
Sýning þessi ber heitið „Stóla á þig“ og eiga verkin það sameiginlegt að tengjast umhverfinu, stöðum og hlutum sem grípa augað.
Á sýningunni má t.d. finna málverk af ryðguðum stól sem Rósa hefur staðsett á mismunandi stöðum og málað.