fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirAtvinnulífSunna Björg ráðin framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku

Sunna Björg ráðin framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku

Hafnfirðingurinn Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku og hefur störf hjá fyrirtækinu í byrjun febrúar. Sunna er með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. gráðu í efna- og vélaverkfræði.

Hún hóf sinn starfsferil hjá ISAL og starfaði þar samtals í 14 ár, síðast sem framkvæmdastjóri Rafgreiningar frá 2013 – 2015. Þá tók hún við starfi framkvæmdastjóra tæknisviðs hjá Alvotech frá 2015-2018 og nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Codex á Íslandi.

Sunna var afrekskona í sundi með SH og Íslandsmethafi. Þá var hún í liði SH sem varð Íalandsmeistari í garpasundi á síðasta ári.

Þá var Björk Þórarinsdóttir ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og þjónustu. Björk er með Cand. Oecon. af stjórnunarsviði frá Háskóla íslands og próf í verðbréfamiðlun frá Háskólanum í Reykjavík.

HS Orka er leiðandi í nýtingu jarðvarma á Íslandi og rekur tvö orkuver í Svartsengi og á Reykanesi. Þá verður fyrsta vatnsaflsvirkjun fyrirtækisins í Tungufljóti gangsett á næstu dögum. Fyrirtækið hyggur á stækkun Reykjanesvirkjunar og Svartsengisvirkjunar með betri nýtingu á þeirri gufu sem nú þegar er nýtt til orkuframleiðslu og án þess að auka upptekt. Þá hefur Auðlindagarðurinn vakið athygli bæða heima og erlendis fyrir fullnýtingu á þeim affalsstraumum sem falla til við vinnslu fyrirtæksins. Fyrirtækið hefur verið í efsta sæti í mælingu á ánægju viðskiptavina á raforkumarkaði í 14 skipti á síðustu 16 árum.

Á árinu 2019 hlaut fyrirtækið jafnlaunavottun og í framkvæmdarstjórn sitja nú 3 konur og 4 karlar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2