fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSjö heimsmet sett á bogfimimóti - Fjögur hafnfirsk

Sjö heimsmet sett á bogfimimóti – Fjögur hafnfirsk

Sjö heimsmet voru sett á „Bogfimisetrið Indoor 2020“ mótinu sem haldið var15. janúar sl. í Bogfimisetrinu í Reykjavík.

Hlynur Óskarsson í Bogfimifélaginu Hróa Hetti setti 2 heimsmet í Berboga Karla U21 og U18 með 243 stig. Þetta var fyrsta móti sem Hlynur hefur keppt á í bogfimi en hann er aðeins 12 ára gamall.

Guðbjörg Reynisdóttir, 18 ára Reykvíkingur í Bogfimifélaginu Hróa Hetti í Hafnarfirði setti 2 heimsmet í Berboga kvenna opnum flokki og U21 með 433 stig. Guðbjörg keppti einnig um brons á EM í víðavangsbogfimi í fyrra og er margfaldur Íslandsmeistari, tvöfaldur norðurlandameistari og á mörg Íslandsmet í bogfimi.

Ólafur Ingi Brandsson BF Boginn í Kópavogi setti 2 heimsmet í Berboga karla opnum flokki og 50+ með 453 stig. Ólafur vann silfur á HM öldunga 2018. Ólafur er einnig margfaldur Íslandsmeistari og á mörg Íslandsmet.

Nóam Óli Stefánsdóttir BF Boginn í Kópavogi setti 1 heimsmet í Berboga Karla U18 með 66 stig.

Heimssambandið hefur auglýst að þar sem met fyrir berboga eru ný að þá verða þau ekki staðfest fyrr en 1. apríl, en óformleg staðfesting er fyrir hendi þar sem búið er að færa metin til bókar í kerfi heimssambandsins. Þegar staðfesting berst ættu metin að vera staðfest sem Evrópumet einnig.

Því má gera ráð fyrir því að sum af þessum metum muni ekki standa til lengdar.

Berbogi hefur áður aðeins verið hluti af víðavangsbogfimi og 3D bogfimi innan vébanda heimssambandins, en var núna 15. janúar tekinn inn í sem keppnis boga flokkur markbogfimi af heimssambandinu.

Á Íslandi hefur berbogi verið hluti af Íslandsmeistaramótum í um 4 ár og mikil hefð er fyrir berboga í markbogfimi á Norðurlöndum

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2