fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniVetrarfrí í skólum og frítt í sund - Fjölbreytt dagskrá í menningarstofnunum

Vetrarfrí í skólum og frítt í sund – Fjölbreytt dagskrá í menningarstofnunum

Fjölbreytt dagskrá í Bókasafni Hafnarfjarðar, Hafnarborg og í Byggðasafninu

Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar á fimmtudag og föstudag.

Af því tilefni verður frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

Fjölbreytt dagskrá verður í menningarhúsum bæjarins, upplestur, bókabíó, listasmiðja, fornleifagröftur og bolluvandaföndur svo eitthvað sé nefnt.

Sjá dagskrá hér að neðan:

Miðvikudagur 19. febrúar

Kl. 13-14 UPPLESTUR í Bókasafni Hafnarfjarðar
Blær Guðmundsdóttir og Hjalti Halldórsson lesa upp úr bókum sínum

Kl. 14:30-16:30 Leikhúsbókabíósýning í Bókasafni Hafnarfjarðar
Sýnd verður upptaka af sviðsetningu í Þjóðleikhúsinu á bókinni um Fíusól.

Fimmtudagur 20. febrúar

FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll
Opið 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og 6:30-21 í Sundhöll

Kl. 10-15 PERLUFÖNDUR í Bókasafni Hafnarfjarðar

Kl. 12-16 RATLEIKUR og FORNLEIFAHORN í Byggðasafni Hafnarfjarðar
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna um safnið og börnum gefst tækifæri til að setja sig í spor fornleifafræðinga og grafa upp minjar frá fyrri öldum.

Kl. 13 BÓKABÍÓ í Bókasafni Hafnarfjarðar
Sýnd verður kvikmyndin Þór: hetjur Valhallar

Kl. 13-15 LISTASMIÐJA í Hafnarborg
Í smiðjunni verður unnið með sjálft ljósið, þar sem gerðar verða tilraunir með ólík form og myndir á ljósnæman pappír.

Kl. 16 BÓKABÍÓ í Bókasafni Hafnarfjarðar
Sýnd verður kvikmyndin Hugo.

Föstudagur 21. febrúar

FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll
Opið 6:30-20 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og 6:30-21 í Sundhöll

Kl. 12-15 HREYFIMYNDASMIÐJA fyrir 13-18 ára unglinga
Nemendur fá að kynnast ýmsum grunnþáttum í kvikmyndagerð, svo sem gerð kvikmyndahandrita, tökuferlinu, klippingu og eftirvinnslu. ATHUGIÐ! Aðeins eru 20 pláss í boði. Skráning fer fram hér.

Kl. 12-16 RATLEIKUR og FORNLEIFAHORN í Byggðasafni Hafnarfjarðar
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna um safnið og börnum gefst tækifæri til að setja sig í spor fornleifafræðinga og grafa upp minjar frá fyrri öldum.

Kl. 13 BARNALEIÐSÖGN um Byggðasafn Hafnarfjarðar
Fróðleg leiðsögn um safnið. Safnvörður leiðir gesti um safnið og segir frá.

Kl. 13-15 LISTASMIÐJA í Hafnarborg
Í seinni smiðjunni verður unnið með endurunnið eða endurnýtt efni á skapandi hátt, þar sem möguleikar efnisins til listsköpunar eru kannaðir.

Laugardagur 22. október

Kl. 11-17 RATLEIKUR um Byggðasafn Hafnarfjarðar
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna um safnið og börnum gefst tækifæri til að setja sig í spor fornleifafræðinga og grafa upp minjar frá fyrri öldum.

KL. 12-14 BOLLUVANDAFÖNDUR í Bókasafni Hafnarfjarðar
Við undirbúum bolludaginn og föndrum bolluvendi.

Sunnudagur 23. október

Kl. 11-17 RATLEIKUR um Byggðasafn Hafnarfjarðar
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna um safnið og börnum gefst tækifæri til að setja sig í spor fornleifafræðinga og grafa upp minjar frá fyrri öldum.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2