fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirHafnarfjörður greiðir hæstu frístundastyrki

Hafnarfjörður greiðir hæstu frístundastyrki

Hafnarfjörður er með hæstu frístundastyrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári en Ísafjarðarbær og Fjarðarbyggð bjóða ekki upp á neina frístundastyrki samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ á frístundastyrkjum hjá 16 sveitarfélögum landsins.

Af þeim sveitarfélögum sem bjóða upp á slíka styrki eru þeir lægstir í Borgarbyggð, 25.000 kr. á ári. Vestmannaeyjar býður upp á frístundastyrki fyrir lengsta aldursbilið 2-18 ára, en Akureyri í stystan tíma, 6-17 ára gömul börn.

Yfirlit yfir styrki 16 stærstu sveitarfélaga landsins skv. tilkynningu frá ASÍ.

Frístundastyrkir jafna tækifæri barna til tómstundaiðkunar

Mörg sveitarfélög styrkja tómstundastarf barna með svokölluðum frístundastyrkjum sem er yfirleitt ákveðin peningaupphæð á ári sem fylgir hverju barni og er ætluð til niðurgreiðslu á tómstundastarfi.

Rannsóknir sýna að þátttaka í tómstundastarfi hefur áhrif á vellíðan barna og unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á forvarnargildi tómstundastarfs og er það því hagur samfélagsins að börn hafi aðgang að slíku starfi. Tómstundir, hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlistarnám eða annað, gegna því bæði því hlutverki að vera afþreying fyrir börn og unglinga auk þess að hafa menntunar- og forvarnargildi. Tómstundir geta verið dýrar og fjölskyldur eru í misjafnri stöðu til að greiða fyrir þær.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að styrkirnir stuðli að því að börn geti tekið þátt í tómstundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum og að þeir jafni tækifæri barna til tómstundaiðkunar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2