Eiganda húss við Smárahvamm, sem ekki hefur brugðist við bréfi frá bæjaryfirvöldum vegna viðbyggingar sem reist hefur verið í óleyfi, hefur verið gert að greiða 20 þúsund kr. á dag frá 6. mars 2020.
Ekki kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarfulltrúa hvaða aðgerða eigandinn þarf að ráðast í en fyrirvarinn er ekki langur.
Sekt á eiganda við Smárahvamm eða Miðhellu?
Reyndar er annmarki á afgreiðslunni því þar segir að afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykki að leggja dagsektir 20.000 kr. á dag á eiganda Miðhellu 4 frá og með 6. mars 2020 í samræmi við 56.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.