fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirAtvinnulífKjósa um verkfall í Straumsvík

Kjósa um verkfall í Straumsvík

Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um vinnustöðvun starfsfólks í álverinu í Straumsvík en eigendur Rio Tinto á Íslandi hafa ekki enn gefið samþykki sitt fyrir undirritun kjarasamnings sem báðir samningsaðilar höfðu þó samþykkt.

Það eru félagsmenn í Hlíf, VM, VR , FIT, Félagi íslenskra rafvirkja og Félagi rafeindavirkja sem kjósa um vinnustöðvunina. Atkvæðagreiðslan er rafræn og lýkur kl. 13 á föstudaginn.

Í sameiginlegri yfirlýsingu formanna verkalýðsfélaga starfsfólks sem vinnur í álverinu í Straumsvík segir að tilboði um eingreiðslu og framlengingu friðarskyldu sé hafnað og að undirbúningur verkfallsaðgerða sé hafinn.

„Stéttarfélög starfsmanna Rio Tinto á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straumsvík, vilja sem fyrr ljúka undirritun nýs kjarasamnings sem aðilar deilunnar hafa komið sér saman um, en ekki hefur fengist samþykki fyrir frá hluthafa Rio Tinto á Íslandi hf. Stéttarfélögin hafa því ákveðið að hafna tilboði Rio Tinto á Íslandi hf. og Samtaka atvinnulífsins um eingreiðslu og framlengingu friðarskyldu, án nýs kjarasamnings, og hefja þess í stað undirbúning atkvæðagreiðslu félagsmanna sinna um boðun verkfallsaðgerða.“

Varð þetta niðurstaða formanna og samninganefnda félaganna að höfðu samráði við starfsmenn álversins. Niðurstaða stéttarfélaganna var kynnt viðsemjendum þeirra á fundi hjá Ríkissáttasemjara 4. mars.

Verði niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna að boðað skuli til verkfallsaðgerða verða verkföll boðuð svo fljótt sem verða má eftir að sú niðurstaða liggur fyrir, en samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur þarf að boða verkföll með minnst 7 daga fyrirvara.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2