fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMunurinn á kórónaveirusýkingu og inflúensu

Munurinn á kórónaveirusýkingu og inflúensu

Nú virðist almenn inflúensa vera að færast í aukana

Einkenni hinnar nýju kórónaveirusýkingar geta verið svipuð inflúensu í upphafi sjúkdóms.

COVID-19

Einkenni COVID-19 líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingu og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4.–8. degi veikinda.

Inflúensa

Einkenni inflúensunnar koma oftast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Algeng einkenni hjá börnum eru ógleði, uppköst og kviðverkir.

Árlega inflúensan veturinn 2019–2020 fór hægt af stað fyrstu vikurnar í janúar en hefur nú færst í aukana. Þar sem þessir tveir faraldrar virðast ætla að ganga samtímis á norðurhveli jarðar kann það að valda vandamálum við greiningu sjúkdómanna. Þeir sem fá þessi einkenni eru hvattir til þess að halda sig heima og hafa samband við heilbrigðisþjónustu símleiðis ef óskað er eftir skoðun. Einnig er rétt að minna á að til eru öflug lyf gegn inflúensu (Tamiflu® hylki og Relenza® innúðaðalyf) sem geta dregið úr einkennum og flýtt bata ef þau eru tekin innan tveggja sólarhringa frá upphafi einkenna. Þessi lyf eru lyfseðilskyld og eru aðallega notuð fyrir einstaklinga með áhættuþætti fyrir alvarlegri inflúensu.

(af vef landlæknis)

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2