Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagði, á fréttamannafundi rétt í þessu. mikið álag hafi verið á símkerfum og netspjalli heilsugæslustöðvanna en sagði mikilvægt að þeir sem þyrftu á þjónustu að halda hefði fyrst samband í síma eða í netspjalli áður en þeir komi á heilsugæslustöð.
Hvatti hann fólk sem fá væg einkenni að halda sig heima og fara vel með sig. Hvatti hann til að fara eftir ráðleggingum sóttvarnarlæknis og halda ró sinni.
Ef þú þarft ráðgjöf hjúkrunarfræðinga vegna COVID-19 þá eru nokkrar leiðir
Veljið samskiptaleið eftir því hversu mikil veikindin eru, til að þeir sem eru alvarlega veikir geti fengið ráðgjöf án tafar.
Alvarleg veikindi:
- Vaktsíminn 1700
- Símtal á þína heilsugæslu á dagvinnutíma
Heilsugæslan Sólvangi sími: 513 6200
Heilsugæslan Firði sími: 513 5400
Minni veikindi:
Samskipti á Mínum síðum á heilsuvera.is
Netspjall á heilsuvera.is – 8:00-22:00
Sjá einnig nánari upplýsingar á www.covid.is