fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirAtvinnulífRio Tinto undirritaði kjarasamning og verföllum aflýst

Rio Tinto undirritaði kjarasamning og verföllum aflýst

Gengið hefur verið frá nýjum kjarasamningi milli verkalýðsfélaga starfsfólks sem starfar í álverinu í Straumsvík og Rio Tinto á Íslandi. Samningurinn gildir frá 1. júní 2019, til 31. mars 2021, eða alls í 22 mánuði.

Verkfallsaðgerðum, sem hefjast áttu 24. mars nk. hefur því verið frestað.

Samningurinn byggir í öllum meginatriðum á þeim kjarasamningum sem þegar er búið að gera.

„Því til viðbótar náðust inn að hluta leiðréttingar á ýmsu þar sem laun starfsfólks í álverinu hafa dregist aftur úr öðrum samningum frá 2015,“ segir í tilkynningu Hlífar. „Það er ljóst, að órofa samstaða starfsfólks, eins og hún birtist í atkvæðagreiðslu um boðun aðgerða, hefur skilað þessum árangri.“

Samningurinn verður kynntur á næstu dögum í félögunum. Kynningarnar munu taka tillit til ástandsins í samfélaginu vegna COVID-19 faraldursins og fara að einhverju leyti fram í fjarfundaformi og á vefjum félaganna.

Áætlað er að atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist kl. 11 nk. þriðjudag og ljúki kl. 11 föstudaginn 27. mars.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2