Veitingahúsið Tilveran er af mörgum talið eitt best geymda leyndarmál Hafnarfjarðar. Staðurinn fær glæsilega dóma á Tripadviser. Fjölmargir erlendir gestir hafa skrifað afar jákvæða dóma um staðinn og nýlega skrifaði Breti nokkur að þar hafi hann fengið bestu máltíð sem hann nokkurn tíma hafi borðar á ferðlögum sínum um heiminn!
Gísli Dan Gíslason, veitingamaður í Tilverunni, hefur með metnaði sínum gert staðinn að einum besta sjávarréttastað landsins en hann tók við rekstri hans árið 2006 en veitingahúsið var stofnað haustið 1992.
Nú þegar COVID-19 veikin herjar á heimsbyggðina og gerð er krafa um 2 metra á milli fólks og hámark 20 manns í hverju rými býður Gísli upp á nýja þjónustu, að fólk taki með sér matinn heim.
Býður hann m.a. fisk dagsins á 2.500 kr. en hægt er að panta í síma 565 5250.