fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirSkólastarf verður með eðlilegum hætti frá 4. maí

Skólastarf verður með eðlilegum hætti frá 4. maí

Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu tilslakanir á samkomubanni á blaðamannafundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík rétt í þessu.

Tilslakanirnar eru byggðar á þeim spám að ný smit verði komin niður í 1-2 á dag í lok þessa mánaðar.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna efnahagslegra aðgerða verða ákveðnar í vikulok.

Rúmlega 1700 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega hundrað manns lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins. Eins og fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra hefur nýsmitum farið fækkandi að undanförnu. Telja megi víst að faraldurinn sé í rénun hér á landi sem þakka megi víðtækum samfélagslegum aðgerðum sem gripið hefur verið til. Sóttvarnalæknir bendir á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Það þýði að ef slakað er um of á gildandi takmörkunum skapist hætta á að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggur því til að slakað verði á takmörkunum í skrefum sem endurskoðuð verði með þriggja til fjögurra vikna millibili.

Helstu tilslakanir frá 4. maí:

Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 m fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
  • Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
  • Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
  • Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

 Nokkur atriði sem haldast óbreytt:

  • Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
  • Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
  • Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
  • Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
  • Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.
  • Áfram er stefnt að lokun ytri landamæra Schengen-ríkja og lagt til að ríki framlengi ferðatakmarkanir til 15. maí. Ísland mun gera það líka.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2