fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirMenning og mannlífVistfólk Hrafnistu söng af gleði með Ingó veðurguði

Vistfólk Hrafnistu söng af gleði með Ingó veðurguði

Brekkusöngur á Hrafnistu

Það var kátt í höllinni á Hrafnistu í Hafnarfirði þegar Ingó veðurguð mætti með með gítarinn í hönd og söng og stjórnaði brekkusöng að hætti Eyjamanna í menningarsalnum.

Auk þeirra fáu áhorfenda sem leyfi fengu til að dreifa sér með góðu millibili um menningarsalinn, þar sem tónleikarnir voru haldnir, var söngstemningunni streymt til allra deilda heimilisins svo söngurinn ómaði um allt hús og fólk fylgdist með á sjónvarpsskjám. en áætlað var að það hafi verið um 330 manns í húsinu.

Reyndar gátu allir fylgst með því söngnum var streymt á  Facebooksíðu heimilisins (Handverksheimilið Hrafnista Hraunvangi, Hafnarfirði).

Þemað var í stíl með lopapeysu, ullarvetlingum, sokkum og gúmmítúttum ásamt örlíitlu ölglöggi og kakói á eftir.

Árdís Hulda Eiríksdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði var hæst ánægð með stemmninguna en aðspurð sagði hún að andrúmsloftið hafi verið mjög gott á heimilinu undanfarið þrátt fyrir allar takmarkanir. Heimilinu hafi verið skipt upp í 9 svæði og kappkostað hafi verið að vera með fjölbreyttar uppákomur og hljóðkerfi hússins hafi verið vel notað.

Á mánudaginn verða leyfðar heimsóknir, til að byrja með má einn aðstandandi koma í eina klukkustund á dag.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2