fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSundhöllin og Ásvallalaug verða opnaðar á mánudaginn

Sundhöllin og Ásvallalaug verða opnaðar á mánudaginn

Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar opna að nýju á mánudaginn og við tekur hefðbundinn opnunartími á þessum stöðum með smá viðbótum.

Suðurbæjarlaug veður ekki opnuð strax vega umfangsmikilla viðhaldsframkvæmda.

Sundlaugargestir eru áfram beðnir um að fara í einu og öllu eftir sóttvarnarreglum. Til að byrja með verður einungis hægt að taka á móti 50% af hámarksfjölda í hverri laug. Ef tilslakanir yfirvalda ganga eftir mun hámarksfjöldi fara í 75% þann 2. júní og þann 15. júní í 100%.

Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að 2ja metra regla um nándarmörk sé valkvæð og gestir beðnir um að virða regluna eftir megni og dvelja ekki lengur en 1,5-2 klst í hvert sinn.

Tímabundin lokun ef hámarksfjölda er náð

Á hverjum sundstað verður talið í laugarnar þannig að tryggja megi að fjöldi í hverju rými fari ekki umfram reiknað hámark miðað við stærð sundstaðar og ákvörðun ráðuneytis um hámarksfjölda einstaklinga í sama rými á hverjum tíma. Tímabundin lokun laugar og mögulega ákveðinna rýma mun eiga sér stað ef hámarksfjölda gesta er náð. Börn fædd 2015 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Frá og með mánudeginum 18. maí verður hægt að fylgjast með rauntímafjölda í hverri laug á vef bæjarins undir upplýsingum um sundlaugarnar

Opnunartímar og staða í hverri laug

Sundhöll Hafnarfjarðar er opin frá kl. 06:30 – 21 virka daga. Allajafna er Sundhöll Hafnarfjarðar lokuð um helgar en mun til og með 14. júní einnig vera opin um helgar, laugardaga frá kl. 8-18 og sunnudaga frá kl. 8-17.  Hámarksfjöldi til og með 1. júní miðast við 32 einstaklinga (50%) og 75% frá og með 2. júní. Fjöldatakmarkanir falla niður 15. júní.

Ásvallalaug er opin frá kl. 06:30 – 22 mánudaga til fimmtudaga, föstudaga frá kl. 06:30-20, laugardaga frá kl. 8-18 og sunnudaga frá kl. 8-17. Hámarksfjöldi til og með 1. júní miðast við 200 einstaklinga (50%) og 75% frá og með 2. júní. Fjöldatakmarkanir falla niður 15.júní.

Gert er ráð fyrir að opna útisvæði Suðurbæjarlaugar mánudaginn 25. maí nk. sem þýðir að einungis verður opið í útilaug, potta og útiklefa. Hámarksfjöldi til og með 1. júní miðast við 30 einstaklinga (50%). Frá og með 2. júní er gert ráð fyrir 60 einstaklingum. Meðan viðhaldsframkvæmdir standa yfir verða áfram takmarkanir á fjölda gesta.

Áfram gildir, líkt og á öllum öðrum stöðum, að gestir mega ekki koma inn á sundstaði ef þeir:

  • eru í sóttkví
  • eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku)
  • hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
  • eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2