fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirRýmri reglur um komur ferðamanna frá 15. júní

Rýmri reglur um komur ferðamanna frá 15. júní

Samkvæmt hagrænu mati sem unnið var að beiðni forsætisráðherra og kynnt var í ríkisstjórn í gær yrðu efnahagslegar afleiðingar þess að viðhalda óbreyttu ástandi ferðatakmarkana gríðarlegar og rétt að draga úr þeim samhliða sóttvarnaaðgerðum. Takmarkaður ferðavilji í heiminum skapi aðstæður til að stíga varfærin skref í átt til opnunar.

Sýnataka eða vottorð

Þá hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að fallast á tillögu sóttvarnalæknis, sem fjallað var um á fundi ríkisstjórnar, um breytingu á reglum um komur ferðamanna til Íslands. Komufarþegum mun standa til boða að fara í sýnatöku á Keflavíkurflugvelli frá og með 15. júní og í framhaldinu á öðrum helstu landamærastöðvum eða framvísa jafngildu vottorði að utan. Að öðrum kosti þurfa þeir að fara í tveggja vikna sóttkví eins og verið hefur.

Sóttvarnalæknir mun bera meginábyrgð á framkvæmd sýnatöku og greiningu sýna í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sýkla- og veirufræðideild Landspítala og Íslenska erfðagreiningu en forsætisráðherra hefur skipað samhæfingarteymi sem aðstoðar sóttvarnalækni við undirbúning og framkvæmd verkefnisins.

Bráðabirgðamat bendir til þess að kostnaður við sýnatöku á Keflavíkurflugvelli fyrstu tvær vikurnar frá rýmkun reglna um komu ferðamanna til landsins yrði um 160 milljónir króna ef 500 manns koma til landsins á dag en stefnt er að því að tilkynna á næstu dögum hvað sýnatakan muni kosta farþega.

Efnahagsleg sjónarmið við losun ferðatakmarkana – hagræn greining.

Minnisblað sóttvarnalæknis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2