Skip franska skipafélagsins Ponnant hafa komið til Hafnarfjarðar í fjölmörg ár og hafa dvalið hér að jafnaði í nokkra daga og haft bækistöðvar sínar þegar skipt er um áhafnir. Skipið rekur m.a. fjögur systurskip og er Le Boréal á meðal þeirra en skipið er fremur lítið, tekur mest 264 farþega og er með 140 manna áhöfn. Skipið er þó allt hið glæsilegasta.
Í stað þess að sigla til Hafnarfjarðar varð skipið það fyrsta til að Reykjavíkur um síðustu helgi en ekki er sóttvarnarhöfn skilgreind í Hafnarfirði og því mega skemmtiferðaskip ekki sigla hingað.
Le Bellot, sem er eitt af lúxusskipum félagsins kom svo til Reykjavíkur sl. sunnudag en það tekur að hámarki 184 farþega og siglir með 120 manna áhöfn.
Það er einhver tekjumissir fyrir Hafnarfjarðarhöfn að missa af þessum skipum en 16 komur skemmtiferðaskipa voru skráð á síðasta ári og mátti búast við álíka fjölda í ár miðað við þróun síðustu ára.