fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÍþróttirFótboltiÞjálfaraskipti hjá FH - Eiður Smári og Logi taka við

Þjálfaraskipti hjá FH – Eiður Smári og Logi taka við

Ólafur þjálfar í Danmörku

Eiður Smári Guðjohnsen og Logi Ólafsson hafa verið ráðnir þjálfarar meistaraflokks FH í knattspyrnu og munu taka að sér að stýra liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Ólafur Helgi Kristjánsson sem þjálfað hefur FH liðið undanfarin þrjú ár tók við danska 1. deildarliðinu Esbjerg fyrr í dag.

Eiður Smári er einn besti leikmaður Íslands í knattspyrnu og á hann farsælan feril að baki sem leikmaður og vann fjölmarga titla með m.a. Chelsea og Barcelona. Eiður Smári á einnig langan landsliðsferil að baki og spilaði 88 landsleiki fyrir Ísland og er markahæsti leikmaður liðsins. Eiður Smári er aðstoðarþjálfari íslenska U21 landsliðsins.

Logi Ólafsson er einn reynasti þjálfari landsins og hefur þjálfað félagslið bæði hérna heima og erlendis ásamt því að stýra bæði kvenna- og karlalandsliði Íslands. Logi Ólafsson lék fyrir FH á sýnum leikmannaferli og þjálfaði FH síðast 2001.

Fyrsti leikur undir þeirra stjórn er á laugardaginn gegn Fjölni í Grafarvogi

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2