fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttir„Lán“ barna- og unglingaráðs FH til stjórnar knattspyrnudeildar ekki lán heldur styrkur

„Lán“ barna- og unglingaráðs FH til stjórnar knattspyrnudeildar ekki lán heldur styrkur

Formaður knattspyrnudeildar FH staðfesti í desember að stjórnin hafi tekið 5 milljóna kr. lán úr barna- og unglingastarfinu sem greiða ætti sem fyrst til baka

Á fundi Íþrótta- og tómstundanefndar 13.12.2019 óskaði íþrótta- og tómstundanefnd eftir upplýsingum frá eftirlitsnefnd Hafnarfjarðarbæjar um fjármál íþrótta- og æskulýðsfélaga um hvort hún hyggðist taka fyrir lán frá barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar Fimleikafélags Hafnarfjarðar til meistaraflokks sömu deildar.

Lán til að gera upp laun knattspyrnudeildar

Staðfesti Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fjarðarfréttir í desember 2019 að lánið næmi 5 milljónum kr. og að skuldabréf hafi verið gefið út fyrir láninu með endur­greiðslu í maí.

Sagði Valdimar að stjórn knattspyrnudeildarinnar hefði helst viljað sleppa við að taka þetta lán en lausafjárstaðan hefði erfið nú, m.a. vegna tafa á samningum við Hafnar­fjarðarbæ. Þó fjárhagur væri aðskilinn hafi reksturinn verið sveiflukenndur og fé hafi þá verið fært á milli í hina áttina líka. Lagði hann áherslu á að þessi lántaka ætti ekki að hafa áhrif á starf barna og unglinga enda verði stefnt að því að greiða lánið hratt niður. Sagði hann enga launung á að í aðdraganda jóla hafi verið talið mikilvægt að gera upp laun leikmanna, þjálfara og starfsmanna deildarinnar.

Staðfesti Valdimar að lánið næmi 5 milljónum kr. og að skuldabréf hafi verið gefið út fyrir láninu með endur­greiðslu í maí.

Stjórn barna- og unglingaráðs kom ekki að undirritun bréfsins en skv. lögum FH skal fjárhagur unglingaráða vera aðskilinn frá fjármálum meistaraflokka.

Ekki lán heldur hlutdeild í sameiginlegum stjórnunarkostnaði

Á fundi eftirlitsnefndar um fjármál íþrótta- og æskulýðsfélaga 20. maí sl. var málið tekið fyrir og fékk nefndin staðfest frá Viðari Halldórssyni, formanni aðalstjórnar FH, að þetta hafi ekki verið lán heldur hlutdeild barna og unglingastarfs í sameiginlegum stjórnunar kostnaði við rekstur knattspyrnudeildar félagsins eins og fram kemur í ársreikningi knattspyrnudeildar. Sagði Viðar í svari til nefndarinnar að þessi háttur verði hafður á hér eftir.

Mjög umdeilt mál

Stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar FH sagði sig frá störfum fyrir deildina sl. vetur og var ástæðan sögð, í tilkynningu til foreldra, skoðana­ágreiningur við formann og framkvæmdastjórn knattspyrnudeildar og formann FH, trúnaðarbrestur og óásættanleg vinnubrögð þeirra undangengnar vikur.

Undan­farin ár hafa foreldrar þurft að greiða sérstakt gjald sem er leiga fyrir afnot af minnsta knatthúsinu, Dvergn­um og hefur verið mikil óánægja með það meðal foreldra.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2