Unnið er að viðgerðum á Pakkhúsinu á safnatorfunni við Vesturgötu.
Skv. upplýsingum Helgu Stefánsdóttur hjá Hafnarfjarðarbæ er verið að skipta um járnið á öllu þakinu laga skífur á göflum. Þá segir hún að einnig sé verið að laga timburklæðninguna utan á húsinu þar sem þörf er á.
Sagði Helga að Hafnarfjarðarbær hafi fengið styrk til verksins frá Minjastofnun.
Skv. upplýsingum á vef Minjastofnunar veitti Húsafriðunarsjóður á þessu ári 4,5 milljónum kr. til endurbóta á Bryde pakkhúsinu og 6 milljónum til viðgerða á húsi Bjarna riddara. .