fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniRebekka Blöndal syngur á fyrstu síðdegistónleikum Hafnarborgar

Rebekka Blöndal syngur á fyrstu síðdegistónleikum Hafnarborgar

Andrés Þór Gunnlaugsson listrænn stjórnandi í nýrri tónleikaröð

Á föstudaginn kl. 17 syngur Rebekka Blöndal á fyrstu tónleikum tónleikaraðarinnar Síðdegistónar í Hafnarborg, þar sem hún mun syngja lög stórsöngkonunnar Billie Holiday.

Rebekka er ein efnilegasta jazzsöngkona landsins og ætlar hún að túlka lög Billie á sinn hátt. Rebekku til halds og trausts verða þeir Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Haraldur Ægir Guðmundson á kontrabassa. Holiday skildi eftir sig ótal margar perlur, margar þeirra magnþrungnar ballöður og ástarlög og verður það helsta sem unnendur hennar þekkja flutt á tónleikunum.

Andrés Þór Gunnlaugsson

Síðdegistónar í Hafnarborg er glæný tónleikaröð sem fram fer einn föstudag í mánuði frá september til maí. Tónleikaröðin er studd af Tónlistarsjóði, auk Hafnarborgar, og listrænn stjórnandi er Andrés Þór Gunnlaugsson. 50 sæti verða í boði á tónleikanna og eru gestir beðnir um að panta miða í gegnum tölvupóst, hafnarborg@hafnarfjordur.is, eða í síma 585 5790. Aðgangur er ókeypis.

Haraldur Ægir Guðmundsson

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2