fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirÓgnaði pari með eggvopni við Skarðshlíðarskóla

Ógnaði pari með eggvopni við Skarðshlíðarskóla

Engan sakaði en parinu var mjög brugðið

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Skarðshlíðarhverfi á sjöunda tímanum í kvöld eftir umfangsmiklar aðgerðir Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Tilkynning barst til lögreglu rétt fyrir klukkan fimm um mann sem ógnaði pari með eggvopni við Skarðshlíðarskóla.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins og var nærliggjandi götum lokað á meðan leitin að manninum stóð yfir, en hann fannst í nærliggjandi húsi.

Engann sakaði, en fólkinu sem var ógnað við Skarðshlíðarskóla var eðlilega mjög brugðið.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2