fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttir12 Íslandsmeistaratitlar Badmintonfélags Hafnarfjarðar

12 Íslandsmeistaratitlar Badmintonfélags Hafnarfjarðar

Meistaramót Íslands fór fram í glæsilegri umgjörð í Íþróttahúsinu við Strandgötu um liðna helgi. Badmintonsamband Íslands og Badmintonfélag Hafnarfjarðar sáu um framkvæmd mótsins í sameiningu sem tókst einstaklega vel.

Alls tóku 35 BH-ingar þátt í mótinu. BH átti fulltrúa í 9 af 12 úrslitaleikjum í A, B og öldungaflokkum, 3 af 5 leikjum í meistaraflokki og unnu 12 Íslandsmeistaratitla af þeim 27 sem í boði voru..

Róbert Ingi Huldarsson komst í úrslit í einliðaleik karla í meistaraflokki og var fyrsti BH-ingurinn í sögunni til að ná þeim árangri. Stóð sig vel á móti margföldum Íslandsmeistara, Kára Gunnarssyni, í úrslitaleiknum og var á tímabili með forystu í annarri lotu.

Í fyrsta sinn í sögunni átti BH keppanda í úrslitum í einliðaleik í meistaraflokki karla en það var Róbert Ingi Huldarsson sem náði þeim frábæra árangri.

Róbert Ingi Huldarsson. – Ljósmynd: Ingimar Ingimarsson.

Eftirfarandi BH-ingar urðu Íslandsmeistarar um helgina:

  • Rakel Rut Kristjánsdóttir, Íslandsmeistari í einliða- og tvíliðaleik í A-flokki
  • Irena Ásdís Óskarsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki
  • Valgeir Magnússon, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki
  • Orri Örn Árnason, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í A-flokki
  • Natalía Ósk Óðinsdóttir, Íslandsmeistari í einliða- og tvíliðaleik í B-flokki
  • Guðmundur Adam Gígja, Íslandsmeistari í tvíliða- og tvenndarleik í B-flokki
  • Jón Sverrir Árnason, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í B-flokki
  • Lilja Berglind Harðardóttir, Íslandsmeistari í tvenndarleik í B-flokki
  • Sara Bergdís Albertsdóttir, Íslandsmeistari í tvíliðaleik í B-flokki

Eftirfarandi BH-ingar unnu silfurverðlaun á mótinu:

  • Róbert Ingi Huldarsson, 2. sæti í einliðaleik karla í meistaraflokki
  • Erla Björg Hafsteinsdóttir, 2. sæti í tvíliða- og tvenndarleik í meistaraflokki
  • Gabríel Ingi Helgason, 2. sæti í einliðaleik karla í A-flokki
  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, 2. sæti í einliða- og tvíliðaleik í B-flokki
  • Guðmundur Adam Gígja, 2. sæti í einliðaleik karla í B-flokki
  • Stefán Steinar Guðlaugsson, 2. sæti í tvíliðaleik í B-flokki
  • Valþór Viggó Magnússon, 2. sæti í tvíliðaleik í B-flokki
  • Lilja Berglind Harðardóttir, 2. sæti í tvíliðaleik í B-flokki
  • Jón Sverrir Árnason, 2. sæti í tvenndarleik í B-flokki
  • Natalía Ósk Óðinsdóttir, 2. sæti í tvenndarleik í B-flokki
Verðlaunahafar BH í A og B flokkum. Á myndina vantar Gabríel Inga.

Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2