fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniIðnþing í beinni kl. 13 í dag

Iðnþing í beinni kl. 13 í dag

Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið í Silfurbergi í Hörpu í dag, föstudag kl. 13.00-14.30. Vegna samkomutakmarkana verður Iðnþing að þessu sinni í beinni útsendingu í stað fjölmenns viðburðar.

Horfðu á iðnþingið hér:

 

Á þinginu verður kastljósinu beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.

Dagskrá

  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Áskorun um fjölgun nýrra starfa – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
  • Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Umræður – Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI, Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV, Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Á milli dagskrárliða er vitnað til orða nokkurra forkólfa í íslenskum iðnaði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2