fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirLandsnet er tilbúið í framkvæmdir en hluti leyfisveitenda vill jarðstreng

Landsnet er tilbúið í framkvæmdir en hluti leyfisveitenda vill jarðstreng

Fyrr á þessu ári lauk umhverfismati vegna Suðurnesjalínu 2 sem liggja á frá Hafnarfirði og út á Reykjanes. Línunni er ætlað að bæta við tengingu Suðurnesja við flutningskerfi raforku og bæta þannig raforkuöryggi ef núverandi lína dettur út en í dag veldur það straumleysi á svæðinu. Einnig getur það valdið óstöðugleika víðar í kerfinu og hefur valdið straumleysi í bænum að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets í svari við fyrirspurn Fjarðarfrétta.

Hluti leyfisveitenda vill að línan verði lögð í jörðu

„Landsnet er því tilbúið að hefja framkvæmdir en hluti leyfisveitenda er á því að línan skuli lögð í jörðu og er því framkvæmdaferlið ekki hafið,“ segir Steinunn en komið hefur fram að sveitarstjórnum Reykjanesbæjar og Sveitarfélagsins Voga hugnist jarðstrengsvalkostur best. Þá hafa einstaka landeigendur sett sig upp á móti því að loftlína fari um þeirra land en alls hefur verið samið við eigendur 28 af 33 um að fara með loftlínu í gegnum þeirra land skv. upplýsingum frá Landsneti.

Hafnarfjarðarbær hefur ekki sett sig upp á móti því að loftlína fari um þeirra land og höfðu veitt framkvæmdaleyfi fyrir lagningu línuvegar um ósnortið hraun í upplandi bæjarins.

Línan mun liggja upp í Hrauntungur sunnan Hafnarfjarðar, rétt vestan við við rallýkrossbrautina og er það fyrsti liðurinn í myndun nýs „hnútpunktar“ raforkuinnviða í Hafnarfirði í stað núverandi Hamranes tengivirkis.

Umhverfismat í undirbúning vegna Lyklafellslínu

Þá er einnig í undirbúningi nýtt umhverfismat vegna Lyklafellslínu sem liggja á um sama hnútpunkt í Hrauntungum sem áður er nefndur.

Valkostirnir tveir fyrir Lyklafellslínu 1 sem ætlunin er að meta í umhverfismatinu. Á kortinu sjást einnig vatnsverndarsvæði í námunda við áhrifasvæði framkvæmdarinnar.

Báðar þessar línur munu liggja vestan við Vellina í Hafnarfirði og eru forsenda fyrir niðurrifi Hamraneslína 1 og 2 sem liggja um Heiðmörkina.

Í umhverfismati Lyklafellslínu er einning tekin fyrir stutt lína frá Hamranesi sem ætlað er að koma í stað núverandi Ísallínu.

Valkostir fyrir Lyklafellslínu 1 sem ætlunin er að meta í umhverfismatinu, þ.e. loftlínukostur og jarðstrengskostur. Á kortinu sjást einnig Hamraneslínur 1 og 2, sem ætlunin er að rífa.

„Áætlanir Landsnets ganga því út á að fylgja með þróun og þenslu íbúabyggðar með byggingu Suðurnesjalínu 2 og Lyklafellslínu 1 fjær byggð en núverandi línur. En á móti taka niður fjórar línur, Hamraneslínur 1 og 2 og Ísallínur 1 og 2.

Til hefur staðið að hefja þessar framkvæmdir nú um margra ára skeið en flóknir leyfisferlar, kæruferli og dómsmál hafa tafið framgang þeirra,“ upplýsir Steinunn.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2