fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirSmit hjá nemendum í Setbergsskóla - Leikskólinn Vesturkot lokaður vegna Covid-19

Smit hjá nemendum í Setbergsskóla – Leikskólinn Vesturkot lokaður vegna Covid-19

Leikskólanum Vesturkoti var lokað í gær eftir að upplýst var að starfsmaður hafði sl. föstudagskvöld greinst  með kórónuveiruna.

Öll börn, um áttatíu talsins og allir starfsmenn, um tuttugu talsins eru komnir í sóttkví og fara í sýnatöku. Allar ákvarðanir um framhaldið eru teknar í samráði við smitrakningarteymi almannavarna samkvæmd upplýsingum Særúnar Þorláksdóttur leikskólastjóra.

Systkini í Setbergsskóla sýktust af Kóvid-19

Í morgun var foreldrum barna í Setbergsskóla tilkynnt að í gærkvöldi hafi skólanum borist þær upplýsingar að systkin í skólanum hefðu greinst með Covid. Þau voru í skólanum föstudaginn 2. október en voru í sóttkví í gær og hafa því ekki komið í skólann frá því á föstudag.

Skólinn vinnur eftir fyrirmælum og leiðsögn smitrakningarteymis Almannavarna sem stýrir aðgerðum þegar slík mál koma upp í skólum.

Ekki þótt ástæða til að senda nemendahópa í sóttkví

Þar sem systkinin voru einkennalaus á föstudag og einkenni komu ekki fram fyrr en á sunnudag og mánudag er niðurstaða smitrakningarteymis Almannavarna sú, að ekki sé ástæða til að senda nemendahópa sem systkinin tengjast í sóttkví.

Smitrakningarteymi Almannavarna er nú að rekja hvaða krakka systkinin höfðu samskipti við um helgina og mun hafa samband við foreldra þeirra barna varðandi úrvinnslusóttkví.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2