fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirMinni takmarkanir á íþrótta- og tómstundastarfi barna

Minni takmarkanir á íþrótta- og tómstundastarfi barna

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við ÍSÍ og almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hafa tekið þá ákvörðun að heimila börnum fæddum 2004 og eldri að hefja æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna frá og með gærdeginum. Íþrótta- og tómstundastarf og sundkennsla barna fæddum 2005 og síðar mun hefjast 3. nóvember næstkomandi.

Þann 8. október sl. tóku sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þá ákvörðun að öll íþróttakennsla muni fara fram utandyra að teknu tilliti til ítrustu sóttvarna og að skólasund félli niður. Var þetta gert eftir ítarlega yfirferð yfir stöðuna, í ljósi leiðbeininga sóttvarnaryfirvalda og í samráði við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins. Tilgangur aðgerða var að vernda og viðhalda skólastarfi og var lögð áhersla á að takmarka blöndun barna og unglinga milli ólíkra leik- og grunnskóla höfuðborgarsvæðisins. Eitt smit í leik- og grunnskólum getur leitt til að stórir hópar eða fleiri en einn skóli þurfi að fara í sóttkví.

Staðan var endurmetin sl. fimmtudag á fundi með sviðsstjórum skóla- og frístundasviða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og starfsfólki almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, að íþróttakennsla innandyra og sundkennsla hefjist aftur 3. nóvember. Þann dag fellur úr gildi bráðabirgða ákvæði um höfuðborgarsvæðið í reglugerð nr. 1016 sem snýr að takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

Íþrótta- og tómstundastarf barna sem fædd eru 2005 og síðar utan skóla mun einnig hefjast 3. nóvember, en erfitt er að tryggja að ekki eigi sér stað umfram blöndun en sú sem er í skólastarfi. Í bráðabirgðarákvæði í reglugerðinni sem snýr að höfuðborgarsvæðinu kemur fram að ekki er heimilt að blanda saman ólíkum hópum umfram það sem er í gildi í skólum. Blöndun í íþróttum og tómstundum barna og ungmenna er í flestöllum tilfellum önnur en sú sem er í gildi í skólum barnanna.

Á laugardag var fundur með Almannavörnum höfuðborgarsvæðisins, fulltrúm sveitarfélaganna, ÍSÍ, sérsamböndum innan ÍSÍ og héraðssambanda á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða fundarins var að börn fædd 2004 og eldri geti hafið æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna 26. október. Þetta er afmarkað með þeim skilyrðum sem reglugerð heilbrigðisráðherra frá 19. október segir til um vegna íþróttastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að íþróttastarfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil. Íþróttafólk sem með þessu fær leyfi til æfinga gæti því vel að fjarlægðarmörkum sem eru 2 metrar og gæti einnig að almennum persónubundnum sóttvörnum.

„Við teljum að með því að stöðva íþróttakennslu innandyra og sundkennslu í upphafi mánaðar hafi sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gert allt sem hægt var til að koma í veg fyrir enn fleiri smit meðal skólabarna og fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví ef upp koma smit í þeirra skóla. Það að þurfa að fara í sóttkví er ekki léttvægt og hvað þá síendurtekið eins og dæmin sanna,“ segir í tilkynningu.

Þessar ákvarðanir eru teknar í ljósi þess að höfuðborgarsvæðið er á viðkvæmum tíma í faraldrinum og næstu daga er mikilvægt að fara varlega sem aldrei fyrr til að við náum tökum á þessari bylgju svo hægt verði aftur að draga úr sóttvarnarráðstöfunum í stað þess að framlengja núverandi aðgerðir eða jafnvel herða frekar á þeim ef við missum tökin.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2