Lesandi sem sá fréttina um losun úr götusópi í botnlanga á Álfaskeiðinu segist hafa séð hinn sama úti á miðri götu rétt fyrir kl. 8.30 í morgun á horni Álfaskeiðs og Arnarhraun.
„Þar bunaði drullan aftan úr honum, niður Arnarhraunið og niður á Tjarnarbraut,“ segir lesandinn svo greinilega er ekki allt í lagi með vinnuaðferðirnar.
Lesandinn segist því miður ekki hafa náð mynd af atvikinu.